sudurnes.net
Hafa áhyggjur af fjölda barna sem eru á bak við tölur um fjárhagsaðstoð - Local Sudurnes
Velferðarráð Reykjanesbæjar hefur miklar áhyggjur af þeim fjölda barna sem eru á bak við tölur um fjárhagsaðstoð og telur brýnt að lögð verði áhersla á úrræði fyrir barnafjölskyldur. Sveitarfélagið veitti fjárhagsaðstoð til 77 heimila sem á bjuggu samtals 175 börn í maímánuði. Í maí fengu 364 einstaklingar greidda fjárhagsaðstoð frá Reykjanesbæ, alls voru greiddar kr. 52.230.788 eða að meðaltali kr. 143.491,- Sveitarfélagið fær endurgreiðslu frá ríkinu að upphæð kr. 34.551.791 samkvæmt 15.gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. Í sama mánuði 2022 fengu 243 einstaklingar greidda fjárhagsaðstoð, alls voru greiddar kr. 33.049.917 eða að meðaltali kr. 136.007,- Meira frá SuðurnesjumEkkert smit undanfarna fjóra daga – Um 50 í sóttkvíÞorbjörn hf. greiðir hæsta veiðigjaldið af SuðurnesjafyrirtækjumAthugasemdir gerðar við starfshætti allra apóteka í ReykjanesbæÖflugum ljóskösturum stolið – Fagmannlega að verki staðiðSkemmtiferðaskip nýta þjónustu á Suðurnesjum í auknum mæliFræðsluerindi um kvíða barna og ungmennaMiðasala hafin á Söngvaskáld 2017 – Síðast komust færri að en vilduMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnGlímudeild UMFN lögð niðurKaupa húsnæði Brunavarna Suðurnesja á 175 milljónir króna