Hættustig á Keflavíkurflugvelli vegna bilunar í hreyfli á Boeing 777 flugvél - Local Sudurnes
Tilkynnt var um gult hættustig á Keflavíkurflugvelli í kvöld, en um er að ræða næsthæsta hættustigið. Tilkynningin barst vegna leka í hreyfli á Boeing 777 flugvél sem var að búa sig til lendingar á flugvellinum. Flugvélin, sem er frá Turkmenistan Airlines var með sex manns innanborðs, en ekki var um að ræða farþegaflug. Samkvæmt fréttum mbl.is var slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu tilkynnt um atvikið, auk lögreglu á Suðurnesjum, viðbragðsaðilar voru ræstir út frá báðum stöðum og sendi slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sjúkrabíla í Straumsvík þar sem þeir biðu í viðbragðsstöðu. Flugvélin lenti um klukkan hálftólf og gekk lendingin vel. Engin meiðsli urðu á fólki. Hættustiginu var í framhaldinu aflýst. Meira frá SuðurnesjumSamkomulag við SunExpress um greiðari aðgang að atvinnuflugmannsstarfiRautt óvissustig á KEF í morgunS7 bjóða áfram upp á ferðir á milli Rússlands og Íslands í sumarNeyðarstig virkjað á Keflavíkurflugvelli vegna bilunar í lendingarbúnaði flugvélarStefna á daglegt flug frá PhiladelphiaAmerican Airlines flýgur til KeflavíkurS7 býður upp á beint flug á milli Moskvu og Íslands næsta sumarFramkvæmdum við 1200 metra Mike lokiðSérsveit ríkislögreglustjóra kölluð út – Maður hótaði að beita skotvopnum á ÁsbrúErlendir farandverkamenn herja á íbúa Suðurnesja