sudurnes.net
Hælisleitendur fara í Keflavíkurgöngu - Local Sudurnes
Næstkomandi laugardag standa samtökin No borders og Refugees in Iceland fyrir kröfugöngu frá Keflavík til Reykjavíkur. Gengið verður frá húsnæði Útlendingastofnunar fyrir flóttamenn á Ásbrú og endar gangan á Austurvelli. Með kröfugöngunni vill hópurinn leggja áherslu á fimm kröfur. Í fyrsta lagi að íslensk stjórnvöld hætti brottvísunum, sérstaklega til landa þar sem aðstæður flóttamanna eru óviðunandi. Í öðru lagi að allar umsóknir um alþjóðlega vernd fái efnislega meðferð og þriðja krafan snýr að því að hælisleitendur fái tímabundið atvinnuleyfi. Þá er krafist mannsæmandi heilbrigðisþjónustu og lokun einangrunarbúðanna á Ásbrú. Meira frá SuðurnesjumSegja ástandið slæmt á ÁsbrúMeirihluti vill leyfa ber brjóst í laugunumÖssur vill byggja í Reykjanesbæ – Þarf að taka þátt í hlutkesti um lóðirVill meira fjármagn til Suðurnesja: “Reiknilíkön sem ráðuneyti notast við ganga ekki upp”Aðsent: Athugasemdir við frétt um fjárhagsaðstoð flóttafólksCourtyard hlýtur eftirsótt verðlaun annað árið í röðVilja reka tjaldsvæði að evrópskri fyrirmynd – Hægt verði að bóka gistingu fyrirframSláturhúsið gæti orðið heimavöllur NjarðvíkingaLobster-Hut vill að Suðurnesjamenn fái að kynnast besta skyndibitanumVill að Reykjanesbær taki á móti öllum flóttamönnum – “Úr takti við raunveruleikann”