Hækkanir til höfuðs Vinnumálastofnun - Local Sudurnes
Um 400% verðhækkun á strætókortum í Reykjanesbæ er komin til vegna kaupa Vinnumálastofnunar á strætókortum fyrir hælisleitendur og flóttamenn í bænum, samkvæmt heimildum sudurnes.net. Árskort fyrir almenna notendur í strætó mun hækka upp í 25.000 krónur um áramót, en árskortið kostar nú 5.000 kronur, líkt og áður hefur verið greint frá. Óbreytt verð mun þó vera fyrir börn á aldrinum 6-18 ára, öryrkja og eldri borgara. Verðskráin helst einnig óbreytt fyrir námsmenn 18 ára og eldri sem borga 5.000 krónur. Eftir því sem næst verður komist keypti Vinnumálastofnun á annað þúsund árskort í strætó á síðasta ári til nota fyrir flóttafólk og hælisleitendur og er því um töluverða tekjuaukningu að ræða fyrir sveitarfélagið, haldi viðskiptin við Vinnumálastofnun sama dampi. Vinnumálastofnun kom einnig á sérstöku úrræði í samgöngum fyrir sama hóp á milli Ásbrúar og helstu verslunarkjarna, en þær ferðir voru þó lítið notaðar samkvæmt heimildum. Meira frá SuðurnesjumMikil fækkun gesta í Duus Safnhús eftir að innheimta aðgangseyris hófstErlingur sýnir margvísleg verk í Tjarnarsal Ráðhúss ReykjavíkurGunnar Helgason leikstýrir barnasýningu Leikfélags KeflavíkurFyrirliðar framlengja – Logi tekur 24. tímabiliðKarlakórinn óskar eftir söngglöðum SuðurnesjamönnumFramkvæma fyrir tvo milljarða án lántökuÍ Holtunum heima flutt innRagnar til NjarðvíkurMilljónirnar streyma inn – Gestir Bláa lónsins greiða um 16 [...]