sudurnes.net
Hægt að bóka tíma og komast hraðar í gegnum öryggisleit á KEF - Local Sudurnes
Farþegar eru hvattir til að mæta snemma flug þar sem töluverð umferð verður um Keflavíkurflugvöll fyrir og um páskahátíðina. Farþegar eru einni hvattir til að nota sjálfsafgreiðslustöðvar til að innrita sig í flug eftir því sem hægt er. Opnað er fyrir innritun í flug kl. 03:45 að morgni og öryggisleit er opnuð kl. 04:00, segir í tilkynningu frá Isavia. Til að auka þjónustu og þægindi farþega á Keflavíkurflugvelli er nú einnig hægt að bóka fyrir fram ákveðinn tíma í öryggisleit og fara fram fyrir röð farþegum að kostnaðarlausu. Með þessu geta farþegar notið ferðalagsins og þess sem flugstöðin hefur upp á að bjóða frekar en að bíða í röð. Einnig eru farþegar hvattir til að panta bílastæði, þar sem líklegt þykir að langtímstæði verði fullbókuð um páskana. Meira frá SuðurnesjumÆrslabelgur á ÁsbrúRúmlega 1100 sóttu um tæplega 300 störfOpinn fundur um viðbragðs- og öryggisáætlanir í ferðaþjónustuGrindavík með fjögur lið í bikarúrslitum?Hófí með jólalag – Komið í spilun á SpotifyÍbúafundir í Sandgerði og GarðiEnn vaxtaverkir í FLE – Stuttur biðtími þrátt fyr­ir gríðarlega farþega­fjölg­unHeilbrigðisráðherra mætir á opinn fund um stöðu heilbrigðismála á SuðurnesjumHægt að fylgjast með lokaátökunum á Heimsleikunum í SporthúsinuSeldi allt og flutti til Svíþjóðar – Aðstoðar Vestur-Svía við að kynnast uppruna sínum