Nýjast á Local Suðurnes

Guðrún sér um lýðheilsumálin í Reykjanesbæ

Gengið hefur verið frá ráðningu Guðrúnar Magnúsdóttir í starf  lýðheilsufræðings á velferðarsviði Reykjanesbæjar. Guðrún er hjúkrunarfræðingur að mennt, með meistaragráðu í lýðheilsuvísindum frá Háskóla Íslands með áherslu á stjórnun og stefnumótun í heilbrigðisvísindum.

Undanfarin ár hefur Guðrún starfað sem hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku barna og sem hjúkrunar- og lýðheilsufræðingur í Heilsuskóla barnaspítalans, ásamt störfum á geðsviði Landspítalans.

Guðrún mun hefja störf hjá Reykjanesbæ á haustmánuðum.