sudurnes.net
Guðmundur Steinarsson í hópnum hjá Njarðvík gegn KF - Local Sudurnes
Þjálfari Njarðvíkurliðsins, Guðmundur Steinarsson verður í leikmannahópi Njarðvíkur á morgun þegar liðið tekur á móti KF, þetta kemur fram á Facebook síðu kd. Njarðvíkur. Töluvert er um meiðsl og leikbönn í leikmannahópnum. Guðmundur sagði í stuttu spjalli við FB síðu knattspyrnudeildarinnar að hann væri í búning, en á bekknum gegn KF á Njarðtaksvelli á morgun laugardag. Guðmundur hefur ekki komið við sögu í leikmannahóp liðsins í sumar. Það er því nokkuð ljóst að ef Guðmundur skiptir sjálfum sér inná verður sóknarlína Njarðvíkurliðsins í sterkari kantinum þar sem markamaskínan Tryggvi Guðmundsson er fyrir í fremstu víglínu. Meira frá SuðurnesjumKerfi vegna veggjalda kostaði 40 milljarða – 30.000 hafa tekið þátt í veggjaldakönnunNjarðvíkingar ætla sér sigur í Frostaskjóli í kvöldFyrirlestur um Facebook markaðssetningu í boði Pipar/TBWAÞað er tvennt sem pirrar EurovisionÁrna við framlag ÍslandsFljótlegra að redda dópi en að fá pítsu senda – “Við erum að gera eitthvað rangt”Svikahrappar senda skilaboð í nafni veitingahúss í ReykjanesbæReykjanesbær opnar starfatorg á FacebookLögreglan leitar að Herra Keflavík – Auglýsti fíkniefni til sölu á rangri Facebook-síðuFrá ritstjóra: Skrifast næsta mannslíf á þingmenn og ráðherra?Það er svona auðvelt að stela af snertilausum kortum – Myndband!