sudurnes.net
Guðmundur Leo Norðurlandameistari - Local Sudurnes
Guðmundur Leo Rafnsson náði frábærum árangri á Norðurlandameistaramótinu í Tartu í Eistlandi um helgina. Guðmundur gerði sér lítið fyrir og varð Norðurlandameistari í 200 metra baksundi í unglingaflokki á föstudeginum og á sunnudeginum þá bætti hann silfurverðlaunum í safnið þegar hann hafnaði í öðru sæti í 100m baksundi. Eva Margrét Falsdóttir vann einnig til verðlauna á mótinu en hún var í kvennasveit Íslands sem vann til bronsverðlauna í 4 x 100m skriðsundi.ÍRB átti fjóra fulltrúa í landsliði SSÍ og stóðu þau sig með stakri prýði og náðu öll að synda til úrslita á mótinu. Fannar Snævar Hauksson100m flugsund úrslit 6. sæti50m baksund úrslit 8. sæti Guðmundur Leo Rafnsson200m baksund úrslit 1. sæti og Norðurlandameistari100m skriðsund úrslit 4. sæti100m baksund úrslit 2. sæti. Eva Margrét Falsdóttir:200m bringusund úrslit 5. sæti400m fjórsund úrslit 4. sæti200m fjórsund úrslit 4. sæti Sunneva Bergmann Ásbjörnsdóttir:200m fjórsund úrslit 5. sæti. Meira frá SuðurnesjumDavíð Norðurlandameistari í 100 metra baksundiNeðri deildirnar – Öll Suðurnesjaliðin nældu í stigÍRB með níu Íslandsmeistaratitla á Íslandsmeistaramótinu í 25 metra laugMikilvægur sigur hjá NjarðvíkingumDaníel Leó valinn í U21 landsliðiðÁkveðnir Keflvíkingar lögðu ÍR-inga í Dominos-deildinniHeiðrún og Bjarni íþróttafólk UMFN 2018Bónusgreiðslur í Grindavík – „þykir jafn vænt um stúlkurnar og drengina”Dramatík þegar Grindavík vann Þór [...]