Nýjast á Local Suðurnes

Guðjón Árni ráðinn yfirþjálfari yngriflokka Reynis og Víðis

Unglingaráð Reynis og Víðis skrifuðu í dag undir ráðningasamning við knattspyrnumanninn Guðjón Árna.

Samningurinn er til 5 ára og mun Guðjón hefja störf 1. október næstkomandi. Guðjón mun starfa sem yfirþjálfari yngriflokka án þess þó að vera að þjálfa flokka sjálfur og stýra stefnumótunarvinnu fyrir yngriflokkastarf félaganna.

Reynis-, og Víðismenn bjóða þennan heiðursmann velkomin til starfa en virkileg ánægja er með ráðninguna innan beggja félaga, segir á Facebooksíðu Víðis.