sudurnes.net
Grunsamlegar mannaferðir tilkynntar til lögreglu - Local Sudurnes
Íbúar í Innri-Njarðvík hafa orðið varir við grunsamlegar mannaferðir í kringum húsakynni undanfarið og hefur slíkt verið tilkynnt til lögreglu. Þetta kemur fram í umræðum í Facebook hóp sem ætlaður er íbúum hverfisins. Þar kemur fram að nokkrir íbúar hafi orðið varir við grunsamlegar mannaferðir og að meðal annars hafi verið tekið hafi í hurðarhúna. Af umræðum að dæma virðist sem slíkt athæfi hafi átt sér stað víða um hverfið. Þá gefa íbúar lýsingu á viðkomandi aðila, en hann er talinn vera á milli fertugs- og fimmtugsaldurs á bláum bíl. Lög­regl­an á höfuðborgarsvæðinu hefur einnig fengið slíkar tilkynningar og hvetur íbúa til að gæta vel að eign­um sín­um og gera ráðstaf­an­ir til að koma í veg fyr­ir tjón vegna þjófnaðar, að því er seg­ir í dag­bók lögreglu á höfuðborgarsvæðinu. Meira frá SuðurnesjumVilja að grasið sé slegið oftar í Reykjanesbæ – Óánægðir íbúar reyndu að ganga í störf verktakaÞrettándinn með breyttu sniðiVilja aukna vetrarþjónustu á Suðurstrandarvegi – Lokanir hafa neikvæð áhrifAllt hægt á Facebook: Viltu næla þér í auðvelda mömmu? Eða fá Hafnfirðing á góðu verði?Hálka á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi – Suðurstrandarvegur ófærUpptökur á True detective í VogumSkemmdarverk unnin á nokkrum bílum – Biðla til foreldra að ræða við börn sínSöfnunarstaðir [...]