sudurnes.net
Grunnskóli Grindavíkur tekur þátt í verkefninu Lítill skóli - margir möguleikar - Local Sudurnes
Grunnskóli Grindavíkur tekur þátt í verkefninu Lítill skóli – margir möguleikar / Small schools – Big Opportunities Markmið verkefnisins er fyrst og fremst að nemendur kynnist nemendum frá Danmörku, Færeyjum og Lettlandi, menningu þeirra, tungumáli og sérstöðu. Verkefnið er til tveggja ára og felur í sér nemendaheimsóknir til allra landa. Í hverju landi munu nemendur vinna saman að verkefnum sem tengjast ævintýrum, listum, dansi, söng og snjalltölvum. Nemendur Grunnskóla Grindavíkur fræðast um nærumhverfi sitt og skoða það í samhengi við hinn stóra heim. Þeir skoða hvaða tækifæri liggja í nærumhverfinu samanborið við önnur lönd. Verkefnið á að hjálpa nemendum að sjá að þeir geti sett markið hátt og haft trú á sér úti í hinum stóra heimi því að litlir skólar hafa marga möguleika. Framundan er ferð til Gislev Friskole á Fjóni í Danmörku dagana 4.-9. október. Þar munu nemendur m.a. kynnast skáldinu H. C. Andersen og leika leikritið Hans klaufi á dönsku ásamt nemendum frá hinum löndunum. Nú eru nemendur Grunnskóla Grindavíkur að vinna tvö verkefni sem þeir ætla að sýna í Gislev. Annars vegar er það kynningarmyndband um Grindavík og hins vegar stuttmynd um Hans klaufa. Verkefnið er styrkt af Nordplus Junior sem er menntaáætlun norrænu ráðherranefndarinnar. Markmið menntaáætlunar [...]