Nýjast á Local Suðurnes

Grunnskólarnir settir þriðjudaginn 22. ágúst – Reykjanesbær býður frí námsgögn

Grunnskólarnir í Reykjanesbæ verða allir settir þriðjudaginn 22. ágúst næskomandi, en nánari tímasetningar má finna á heimasíðum grunnskólanna.

Reykjanesbær mun bjóða nemendum upp á frí námsgögn á komandi skólaári. Í haust verða því engir innkaupalistar, en foreldrar þurfa eftir sem áður að sjá börnum sínum fyrir skólatösku, sund- og íþróttafatnaði ásamt ritföngum til afnota heima fyrir, segir í tilkynningu á vef sveitarfélagsins.