Grunaður um að hafa svikið yfir 500 milljónir króna út úr United Silicon
Magnús Garðarsson, fyrrverandi forstjóri og stofnandi United Silicon, er grunaður um að hafa svikið yfir 500 milljónir króna út úr fyrirtækinu, en grunur leikur á að fjölmargir samningar og reikningar sem gerðir hafa verið vegna United Silicon séu falsaðir. Stjórn fyrirtækisins sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem fram kom að stofnandinn hafi verið kærður til Embættis héraðssaksóknara.
Samkvæmt heimildum Kjarnans bárust United Silicon reikningar sem sagðir voru vera frá fyrirtækinu Tenova, sem framleiddi ljósbogaofn verksmiðjunnar. Þeir reikningar voru greiddir en við endurskipulagningu United Silicon, sem nú stendur yfir, hafi komið í ljós að þeir væru alls ekki frá Tenova. Þess í stað hafi fjármunirnir sem greiddir voru ratað inn á reikning annars félags. Stjórn United Silicon telur að Magnús Garðarsson hafi haft umsjón með því félagi.