sudurnes.net
Grunaðir um ölvun við akstur á of miklum hraða með aðra bifreið í eftirdragi - Local Sudurnes
Tveir menn voru handteknir og færðir til sýnatöku á lögreglustöð, grunaðir um að vera undir áhrifum áfengis og fíkniefna, eftir að hafa ekið bifreið með aðra í eftirdragi. Lögregla segir að óhætt sé að segja að mennirnir tveir sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af í vikunni hafi verið með ýmislegt óhreint í pokahorninu. Annar þeirra ók bifreið sem dró aðra bifreið og undir stýri í hinni síðarnefndu sat svo hinn maðurinn. Fyrir það fyrsta mældust þeir aka á allt of of miklum hraða. Þá höfðu báðir verið sviptir ökuréttindum áður. Enn fremur voru þeir sterklega grunaðir um að hafa verið undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Þeir voru því handteknir og færðir til sýnatöku á lögreglustöð. Einn ökumaður til viðbótar var handtekinn og færður á lögreglustöð vegna gruns um fíkniefnaakstur. Meira frá SuðurnesjumBarn í rallýbíl á kerru á ReykjanesbrautHreingerningarfólk fann talsvert magn af fíkniefnumHristi próteindrykkinn hressilega og var stöðvaður af lögregluRóbert fer í greiningu á sameiningarkostumÖlvaður ökumaður vespu handtekinnMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkÁ þreföldum hámarkshraða á Reykjanesbraut með ljóslausan bíl í eftirdragiTekinn undir áhrifum áfengis og fíkniefna á rúntinumFundu reiðufé og kannabisefni við húsleitÖlvaður á Þjóðbraut með barnunga dóttur á ferðinni