Nýjast á Local Suðurnes

Grípa verður til áhrifaríkra mótvægisaðgerða

Bæjarfulltrúar í Reykjanesbæ eru sammála um að grípa þurfi til aðgerða vegna atvinnuástandsins á Suðurnesjum vegna Covid 19 faraldursins, en atvinnuleysi mælist hátt í 20% í Reykjanesbæ.

Bæjarfulltrúar segja í sameinlegri bókun að tækifæri séu til staðar á svæðinu, en aðkomu ríkisins þurfi að málum. Bókunina í heild sinni má finna hér fyrir neðan.

Nú þegar fyrir liggja hertar sóttvarnaraðgerðir á landamærum Íslands, telur bæjarstjórn Reykjanesbæjar einsýnt að grípa verði til áhrifaríkra mótvægisaðgerða til stuðnings þeim aðilum sem verða fyrir þungu höggi vegna þeirra.
Atvinnuleysi mælist nú 19% í Reykjanesbæ og þá á eftir að að meta þær uppsagnir sem Isavia og Fríhöfnin hafa nú gripið til. Reikna má með að flestir þeirra 195 sem þar misstu vinnuna búi á Suðurnesjum.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hvetur því ríkisstjórn Íslands til þess að ráðast nú þegar í aðgerðir til hjálpar þeim einstaklingum og fyrirtækjum sem þessar aðgerðir bitna hvað harðast á.
Þrátt fyrir að það sé hægt að skilja þörfina fyrir slíkum sóttvarnaraðgerðum er ekki hægt að láta einstaka landshluta bera stærstan hluta þess efnahagslega skaða sem óneitanlega hlýst að af þessum aðgerðum. Mótvægisaðgerðir verða tafarlaust að koma til.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar vill því hvetja ríkisstjórn Íslands og þingmenn svæðisins til dáða. Það eru fjölmörg atvinnuskapandi verkefni sem hægt er að ráðast í með litlum fyrirvara og nú ríður á að allir rói í sömu átt til þess að lágmarka þann skaða sem nú þegar er orðinn.“

Anna Sigríður Jóhannesdóttir (D), Baldur Þ. Guðmundsson (D), Díana Hilmarsdóttir (B), Friðjón Einarsson (S), Guðbrandur Einarsson (Y), Guðný Birna Guðmundsdóttir (S), Gunnar Þórarinsson (Á), Jóhann Friðrik Friðriksson (B), Margrét A. Sanders (D), Margrét Þórarinsdóttir (M) og Styrmir Gauti Fjeldsted (S).