Grindvíkingar skoða möguleika á hækka laun þeirra lægst launuðustu
Bæjarráð Grindavíkur er með til skoðunar tillögu um að hækka launakjör þeirra starfahópa sem lægsta launaflokk taka hjá sveitarfélaginu.
Tillagan var lögð fram á fundi ráðsins þann 16. janúar síðastliðinn og afgreidd á þann hátt að sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs sveitarfélagsins var falið að vinna málið áfram og leggja fyrir næsta fund ráðsins.