Grindvíkingar fá hörku Eista
Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur samið við Eistann Joonas Jarvelainen fyrir komandi keppnistímabil. Jarverlainen er 202 sentímetrar og getur leyst stöðu miðherja og framherja.
Jarvelainen á að baki nokkuð farsælan feril í heimalandi sínu og þá hefur hann einnig leikið í Bretlandi. Leikmaðurinn lék með Tal Tech í eistnesku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og var með 18,35 stig að meðaltali í leik.