sudurnes.net
Grindvíkingar einna ánægðastir - Flestir vilja flytja úr Vogum og Suðurnesjabæ - Local Sudurnes
Íbúar Grindavíkur eru með þeim ánægðustu á landinu samkvæmt nýbirtri rannsókn Byggðastofnunar. Í rannsókninni var meðal annars kannað viðhorf íbúa á höfuðborgarsvæðinu og í stærri bæjarfélögum á landsbyggðinni til búsetu. Í skýrslunni kemur fram að ánægja virðist vera mest meðal íbúa Þorlákshafnar og Grindavíkur. Í Vogum er hlutfall þeirra sem segjast mjög ánægðir með búsetu sína talsvert lægra, eða undir 40%. Grindavík er í öðru sæti á eftir Þorlákshöfn þegar kemur að ánægju með búsetu eftir bæjarfélagi en 60% íbúa eru mjög ánægðir með búsetuna og 34% eru frekar ánægðir. Eftirtektarvert er að nánast enginn er mjög óánægður eða frekar óánægður í Grindavík. Í sömu rannsókn kemur fram að flestir vilja eða stefna að því að flytja búferlum úr Vogum, eða 29%. Sömu sögu er að úr Suðurnesjabæ, en um 25% svarenda vilja flytja þaðan. Meira frá SuðurnesjumÍslandsmeistaramótið í sprettþraut á laugardaginnBörnin áfram í fyrsta sætiLýsa furðu á niðurstöðum skýrslu um úthlutun byggðakvóta – Kemur illa út fyrir sveitarfélög í vextiBólusetningar gegn Inflúensu og Covid-1934 veiktust í búðkaupsveislu í Sandgerði – Mengað lambakjöt líklega orsökinKeflvíkingar biðla til stuðningsmanna um fé – Ætla sér stóra hluti í úrslitakeppninniKeflavík fór létt með Njarðvík – “Hefðum tapað með 70 stigum ef Keflavík hefði spilað [...]