sudurnes.net
Grindavíkurvegur lokaður að hluta eftir að rúta fór út af veginum - Local Sudurnes
Grinda­vík­ur­veg­ur verður lokaður um óákveðinn tíma frá Nes­vegi að Bláalóns­vegi og er hjá­leið um Bláalóns­veg, en rúta fór út af veg­in­um í morg­un. Að sögn lög­reglu var bíl­stjór­inn einn í rút­unni og slapp hann ómeidd­ur. Mjög bratt er á þeim stað sem rút­an rann út af í hálku og þar sem rút­an er stór get­ur tekið allt að klukku­stund að ná henni upp á veg, að sögn lög­reglu. Á vef Vegagerðarinnar segir að hálka og élja­gang­ur sé á Reykja­nes­braut. Snjóþekja er nokkuð víða á Reykja­nesi. Meira frá SuðurnesjumStór gikkskjálfti nærri KeiliMissti af beygju og valt út í móaKeflavíkurnætur 12.-14. ágúst – Þýski diskóboltinn Haddaway kemur framStálu verkjalyfjum og rótuðu í vistarverum skipverjaNýtt bókunarkerfi Isavia á Keflavíkurflugvelli – Möguleiki á betra verði sé bókað fram í tímannVinasetrinu verður lokað um áramót – Um 30 börn dvelja á heimilinu um helgarSjálfboðaliðar tóku til hendinni í ReykjanesbæFestist á grjóti uppi á hringtorgiTrampólín á flugi víða um SuðurnesinGanga á Þorbjarnarfell í kvöld – Taktu þátt og þú gætir unnið flott verðlaun