Nýjast á Local Suðurnes

Grindavíkurhöfn í öðru sæti yfir mest landaðan afla af botnfiski

Grindavíkurhöfn er í öðru sæti yfir mest landaða magn af botnfiski á eftir Reykjavíkurhöfn fyrir árið 2021. Þegar kemur að löndun á þorski er Grindavík í efsta sæti með rúmlega 27 þúsund tonn.

Frá þessu er greint á vef sveitarfélagsins og vitnað í yfirlit sem Fiskistofa birti fyrir árið 2021 á vef sínum en þar  má sjá yfirlit yfir þær 40 hafnir með mest landaða magnið og síðan 40 hafnir með mesta landaða magn af botnfiski.

Um er að ræða magn af annars vegar uppsjávarfiski en undir hann flokkast loðna, síld, kolmuni og makríll. Undir botnfiskinn fokkast m.a. þorskur, ýsa, ufsi, karfi og steinbítur.