Grindavík með stórsigur gegn Hetti
Grindvíkingar fóru létt með lið Hattar frá Egilsstöðum í leik liðanna Domino’s deild karla í körfubolta í kvöld. Grindvíkingar unnu leikinn með 30 stiga mun 100-70. Grindvíkingar náðu mest 35 stiga forystu í leiknum, sem fram fór á Egilsstöðum.
Rashad Whack skoraði 27stig og þeir Dagur Kár Jónsson og Sigurður Gunnar Þorsteinsson 17 hvor.