sudurnes.net
Grimes hættir hjá Grindavík - "Deginum ljósara að hún „feel-aði" sig ekki vel á Íslandi" - Local Sudurnes
Ashley Grimes mun ekki leika með Grindvíkingum á nýju ári, Grimes sem var efst í flestum tölfræðiþáttum hjá liðinu virðist ekki hafa notið verunnar hér á landi. Þá hefur þjálfari liðsins, Bjarni Magnússon, glímt við veikindi í jólafríinu en er á batavegi, en Ellert Sig Magnússon mun þó stýra liðinu í hans stað á laugardaginn gegn Stjörnunni. Yfirlýsingin frá Körfuknattleiksdeildinni í heild sinni: „Bandaríski leikmaður kvennaliðs Grindavíkur, Ashley Grimes tilkynnti þann 28. desember að hún myndi ekki snúa til baka eftir jólafrí og þ.a.l. er leit hafin af nýjum Kana. Auðvitað hefði verið best að fá að vita af þessari ákvörðun Ashley um leið og hún hélt heim í jólafrí en við teljum allar líkur á að hún hafi þá þegar verið búin að taka ákvörðunina. Betra er samt seint en aldrei. Ashley skilaði ágætis tölum en m.v. hæfileikana sem í henni búa er deginum ljósara að hún „feel-aði” sig ekki vel á Íslandi því hún sýndi bara brotabrot og gaf lítið af sér. Þess vegna mun þetta vonandi reynast blessun í dulargervi en allar klær eru úti til að finna nýjan Kana og koma honum á skerið sem fyrst. Kvennaliðið lenti í meiri hrakningum í jólafríinu því Bjarni Magnússon þjálfari, [...]