sudurnes.net
Grétar Einarsson látinn - Local Sudurnes
Grétar Einarsson fyrrverandi leikmaður Víðis Garði lést þann 16. september síðastliðinn eftir harða en skammvinna baráttu við alvarleg veikindi. Frá þessu er greint á Facebook-síðu Knattsptrnufélasins Víðis. Grétar hóf knattspyrnferilinn með Víði og var hluti af gullaldarliði félagsins sem spilaði í efstu deild árin 1985-1987 og 1991 og fór alla leið í bikarúrslit árið 1987. Grétar er leikjahæsti leikmaður Víðis í efstu deild (ásamt Vilbergi Þorvaldssyni) með 71 leik og hefur jafnframt skorað flest mörk fyrir Víði í efstu deild, 18 talsins. Á ferli sínum lék Grétar alls 323 leiki og skoraði 159 mörk fyrir Víði. Grétar lék einnig með Keflavík, FH og Grindavík. Grétar lék 3 A-landsleiki. Eftir að Grétar hætti að spila með meistaraflokki var hann aðstoðarþjálfari hjá liðinu og sat í stjórn félagsins í fjölda ára, bæði aðalstjórn og unglingaráði. Meira frá SuðurnesjumPáll áfram með Þrótti – Hefur skorað 44 mörk í 79 leikjumFékk viðurkenningu frá Reykjanesbæ og fálkaorðuna sama daginnKaupa þjónustu af Reykjanesbæ næstu þrjú árinSigurbergur áfram hjá Keflavík – Stefnan sett á Pepsí-deildarsætiÍbúafundur um fjármál Reykjanesbæjar – Staðan grafalvarleg en útlitið er bjartSkólastjóraskipti í SandgerðiAfskriftakóngur stórgræðir á viðskiptum við KadecoSuðurnesjabæjarliðin fá liðsaukaBirkir Freyr aftur í ReyniTekjur HS Orku aukast á milli ára – Rekstrarkostnaður hækkar