sudurnes.net
Greiða út rúmar fimm milljónir króna vegna hækkunar nefndarlauna - Local Sudurnes
Samþykkt var á fundi bæjarráðs Garðs að hækka mánaðarlaun kjörinna fulltrúa í bæjarstjórn Garðs um 26%, en um er að ræða hækkun sem er afturvirk og gildir frá 1. janúar 2017. Vegna þessa samþykkti bæjarráð á fundi sínum þann 29. júní síðastliðinn viðauka við fjárhagsáætlun að fjárhæð kr. 5.300.000. Tekið er fram í bókun bæjarráðs að viðaukinn hafi ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu fjárhagsáætlunar. Þróun launakjara kjörinna fulltrúa í Garði hefur fylgt þróun þingfararkaups, sem ákvarðað er af Kjararáði og hækkaði um rúm 44% þann 1. nóvember 2016. Þessi mál hafa verið til skoðunar undanfarin missri í Garði og lagði bæjarráð til að í stað þess að laun opinberra fulltrúa fylgi þróun þingfarakaups muni breytingar á launakjörum kjörinna fulltrúa taka mið af þróun launavísitölu. Meira frá SuðurnesjumMánaðarlaun kjörinna fulltrúa í Garði hækka um 26% – Taka mið af þróun launavísitöluÁhugi á að setja upp æfingasvæði fyrir motorcross í GarðiStarfsfólk frá Isavia til starfa á LandspítalaRólegt í Garði – Krissi hverfislögga passar upp á að allir hagi sér velTekin með mikið magn af kókaíniÁtak gegn óleyfisbúsetu í iðnaðarhúsnæði – Hundruð manns búa við óviðunandi aðstæðurUngmennaráð fær fulltrúa í nefndir og ráð ReykjanesbæjarGera ráð fyrir 934 milljóna afgangi hjá Reykjanesbæ – Áhersla lögð á að efla [...]