sudurnes.net
Grauturinn mælist vel fyrir í Grindavík - Local Sudurnes
Leiðin að hjarta mannsins liggur í gegnum magann, er stundum haft á orði og því freistandi að taka á móti ungum nemendum með hafragraut í skólanum á morgnana. Nemendur á yngsta stigi hafa margir verið duglegir að nýta sér tilboð um grautinn sem er í boði alla morgna frá kl. 7.30-7.55. Að sögn Sigurbjargar Guðmundsdóttur sem mætir árla morguns til að hræra í pottinum, hefur góður hópur mætt til að gæða sér á grautnum sem í boði er inni í skólaselinu. Grauturinn er í boði skólans og er úrvals undirstaða fyrir daginn, vonandi nýta sem flestir sér þetta góða tilboð, segir á heimasíðu grunnskólans. Fjöldi barna nýtur þess að fá sér hafragraut á morgnanna í Grindavík Meira frá SuðurnesjumFélagar í Leikfélagi Keflavíkur halda uppi stemningu í Ævintýragöngu fjölskyldunnarÞúsund manns fengu sér súpu í boði Nettó – Unnin úr hráefni sem annars væri hentWorld Class opnar í Reykjanesbæ – Korthafar hafa aðgang að öllum stöðvumJólamarkaður Kompunnar opnar í dag – Mikil aðsókn undanfarin árAfhentu Barnaspítala Hringsins ágóða af LífsstílshlaupiSamningur um Heilsueflandi samfélag undirritaður í ReykjanesbæFrítt í söfnin í sumarRagga nagli með fyrirlestur og námskeið í GrindavíkSuðurnesjahönnuðir selja gjafavörur í Svarta PakkhúsinuHalda ráðstefnu um Heilsueflandi samfélag í Reykjanesbæ