sudurnes.net
Gott framboð á lóðum í einu best rekna sveitarfélagi landsins - Local Sudurnes
Grindavíkurbær hefur regulega birt lista yfir lausar lóðir í sveitarfélaginu. Hann má nú nálgast á undirsíðu á vefsíðu sveitarfélagsins. Í Grindavík er hagsætt að byggja en kostnaður vegna nýbygginga er í algjöru lágmarki hjá sveitarfélaginu. Þeir sem vilja byggja í Grindavík þurfa einungis að inna af hendi lágt lóðaúthlutunargjald og greiða síðan gatnagerða- og tengigjöld. Gott framboð er af lóðum af ýmsum toga þessa dagana í Grindavík, hvort sem menn hafa áhuga á að byggja einbýli, parhús, raðhús eða fjölbýli. Einnig eru lausar lóðir sem skipulagðar hafa verið fyrir verslun- og þjónustu og þá eru lausir byggingareitir í hestahúsahverfinu. Grindavík var á síðasta ári ofarlega á lista yfir best reknu sveitarfélög landsins. smella hér til þess að nálgast listann. Meira frá SuðurnesjumMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnHagnaður hjá Kölku – Mikil aukning á endurvinnslustöðvumGrindavíkurhöfn í stöðugri sóknÓánægja með auglýsingu Joe and the juice á KeflavíkurflugvelliHlutaúttekt á HSS: Aðgengi að læknisþjónustu er ábótavant og langur biðtímiSólborg Guðbrandsdóttir framúrskarandi ungur Íslendingur 2022Albanskir ríkisborgarar oftast með fölsuð skilríkiÞekktar byggingar til sölu – Viltu eignast sundhöll eða slipp?Taka saman tölur um tíðni krabbameins á Suðurnesjum23% íbúa á Suðurnesjum eru innflytjendur