Nýjast á Local Suðurnes

Góð afkoma hjá Isavia – “Nauðsynlegt að standa vel að uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli”

Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia setti nýjan vef fyrirtækisins í loftið á aðalfundi

Ársreikningur reikningur Isavia fyrir árið 2017 var samþykktur á aðalfundi félagsins í dag. Rekstur ársins gekk áfram vel og var rekstrarafkoma í samræmi við áætlanir félagsins. Tekjur félagsins námu 38 milljörðum króna sem er 15% aukning á milli ára. Stærsti hluti tekna er tilkominn vegna sölu á þjónustu enda Isavia verið þjónustufyrirtæki í ferðaþjónustu frá stofnun félagsins. Farþegum um Keflavíkurflugvöll fjölgaði um 28% milli ára, flugvélum sem fóru um íslenska úthafsflugstjórnarsvæðið fjölgaði um 12% og innanlandsfarþegum um 3%.

Rekstrarafkoma fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 9,9 milljörðum króna og jókst um 11% á milli ára. Heildarafkoma nam 3,9 milljörðum króna og lækkaði um 3,0 milljarða króna frá fyrra ári. Á sama tíma nema neikvæð áhrif vegna breytinga á gengismun um 3,6 milljörðum króna sem er að mestu tilkominn vegna fjármögnunar í erlendum gjaldmiðlum. Arðsemi eiginfjár var 13,6%.

Heildareignir samstæðunnar námu 72,5 milljörðum króna í árslok 2017 og jukust um 13,3 milljarða króna milli ára. Þar af eru 59,7 milljarðar tilkomnir vegna varanlegra rekstrarfjármuna og óefnislegra eigna. Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum námu 14,4 milljörðum króna og þar af eru um 13,1 milljarður vegna Keflavíkurflugvallar.  Staða eigin fjár hækkaði um 3,9 milljarða króna milli ára sem skilaði um 42,7% eiginfjárhlutfalli sem er lækkun frá síðasta ári en þó ríflegt miðað við þá starfsemi sem félagið er í.

Í lok árs 2017 störfuðu 1.202 starfsmenn hjá móðurfélagi Isavia, þar af þriðjungur konur. Á sama tíma störfuðu 313 hjá dótturfélögum, 221 hjá Fríhöfninni og 46 hjá Tern Systems.

Ingimundur Sigurpálsson, formaður stjórnar Isavia, sagði á fundinum að 1. febrúar síðastliðinn hefði stjórnin samþykkt að leggja þróunaráætlun fyrir Keflavíkurflugvöll, svonefnt Masterplan, til grundvallar allri uppbyggingu á vellinum.

„Og var jafnframt því samþykkt að hefja hönnun á fyrstu verkþáttum uppbyggingaráætlunar til ársins 2025. Þar er gert ráð fyrir því að á árinu 2018 verði boðin út bygging fyrir nýja farangursflokkunar- og skimunarstöð austur við norðurbyggingu flugstöðvarinnar, sem áætlað er að verði tilbúin 2020,“ sagði Ingimundur.

„Einnig er áformað að bjóða út á þessu ári framkvæmdir við áframhaldandi breikkun tengibyggingar og nýtt landamæraeftirlit norðan við núverandi flugstöðvarbyggingu, sem áætlað er að verði tilbúin í árslok 2021. Alls nemur kostnaður við þessa tvo framkvæmdaþætti ríflega 30 milljörðum króna á næstu þremur árum.“

Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, sagði árið 2017 hafa verið viðburðarríkt hjá fyrirtækinu og mætti tengja mikinn vöxt Isavia við aukningu millilandaflugs eing og fyrri ár.

Ísland er nú orðinn heilsársáfangastaður og erum við sérstaklega stolt af þátttöku Keflavíkurflugvallar í því verkefni en sá árangur er afrakstur góðrar samvinnu flugvallarins, verktaka á flugvellinum og flugfélaganna auk ferðaþjónustunnar á Íslandi. Við höfum fjölgað starfsfólki til að takast á við aukna umferð um flugvöllinn og er það okkar góða fólki að þakka hversu vel hefur gengið. Það er líka ánægjulegt að sjá hversu vel hefur tekist að verja arðsemi af rekstrinum við mjög svo þröngar aðstæður á Keflavíkurflugvelli,“ segir Björn Óli.

„Með aukinni flugumferð yfir Norður-Atlantshafið hefur flugleiðsöguþjónusta Isavia haldið áfram að vaxa á liðnu ári. Starfsemin hefur styrkst og ný tækni hefur áfram verið þróuð til verksins. Afkoman af starfseminni hefur áfram verið stöðug.“

„Ég hef verið mjög ánægður með vinnu okkar starfsfólks á innanlandsflugvöllum landsins. Frábæra starf þess hefur gert erlendum aðilum mögulegt að fljúga beint á Akureyrarflugvöll nú í ár. En rétt er að benda á að fyrirbyggjandi viðhaldi á innanlandsflugvöllunum hefur ekki verið sinnt sem skyldi. Það er vegna þess að vantað hefur upp á fjármögnun á þjónustusamningum íslenska ríkisins við Isavia um rekstur vallanna.“

„Á árinu fjölgaði farþegum sem fóru um Keflavíkurflugvöll um nær 28% og töldu um 8,8 milljónir farþega. Til að taka vel á móti þessum fjölda er nauðsynlegt að standa vel að uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli sem og á öðrum innviðum í landinu til að ferðalag þeirra sé sem ánægjulegast frá byrjun til enda.“

Í ræðu sinni á fundinum sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, að góðar samgöngur væru forsenda atvinnugreina og blómlegs mannlífs. Hann sagði að örðugt hafi reynst að tryggja rekstrargrundvöll flugvallarkerfisins innanlands. Viðhald og nýframkvæmdir hafi seti á hakanum og lendingarstöðum lokað. Uppsöfnuð þörf fyrir viðhald innanlandsflugvalla næmi um 7-8 milljörðum króna með nauðsynlegri endurnýjun flugbrauta og flughlaða.

„Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að samkvæmt fjármálaáætlun verður meira fjármagni veitt til viðhalds flugvalla en hefur verið gert á síðustu árum,“ sagði samgönguráðherra.

„Stjórnarsáttmálinn gerir ráð fyrir að mótuð verði eigendastefna fyrir Isavia og mun hún taka til hvert skal stefna varðandi framtíðar fjármögnun og frekari uppbyggingu í þjónustu við flugið.“

Á aðalfundinum var einnig samþykkt ný stjórn félagsins. Aðalstjórn Isavia ohf. skipa þau Ingimundur Sigurpálsson, Eva Pandora Baldursdóttir, Matthías Páll Imsland, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir og Valdimar Halldórsson. Varastjórn skipa þau Sigrún Traustadóttir, Björg Eva Erlendsdóttir, Hreiðar Eiríksson, Ingveldur Sæmundsdóttir og Reynir Þór Guðmundsson.