Glaður vinningshafi – Kaupir sér reglulega Víkingalottómiða á Básnum
Íslendingurinn, sem vann 53,4 milljónir í Víkingalottóinu í gær, segist ekki vera búinn að ákveða hvernig hann muni ráðstafa peningnum. Er hann þó ákveðinn í að hans nánasta fjölskylda fái veglegri jólagjafir en undanfarin ár.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá, en maðurinn var annar tveggja sem höfðu réttar tölur í útdrætti gærdagsins.
„Þessi glænýi vinningshafi keypti miðann sinn í Olís Básnum í Reykjanesbæ en hann á oft leið þar um og kaupir sér reglulega einn Víkingalottómiða, en að þessu sinni breytti hann aðeins til og keypti sér þrjá miða. „Sem betur fer, annars hefði ég misst af vinningnum“ sagði hann en vinningsmiðinn var númer tvö í röðinni upp úr kassanum,“ segir í tilkynningunni. Enginn vinningur fékkst á hina tvo miðana.
Þá segir hann að tilhugsunin, um að eiga allt í einu von á rúmlega 53,4 milljónum inn á bankareikninginn sinn, sé einkar notaleg og þá sérstaklega á þessum árstíma – og bara fyrir það eitt að hafa keypt lottómiða fyrir þúsund krónur.