Nýjast á Local Suðurnes

Gjörsamlega út úr heiminum eftir inntöku hakakrosstöflu

Lögreglan á Suðurnesjum þurfti nýverið að hafa afskipti af pilti sem fárveiktist eftir neyslu á fíkniefnatöflu sem merkt var með hakakrossmerki.  Þegar pilturinn kom heim að næturlagi sáu þeir sem þar voru fyrir að hann var gjörsamlega út úr heiminum, ofsafenginn og til alls vís. Eftir að hafa beitt einn viðstaddra ofbeldi datt hann í gólfið kastaði upp og froðufelldi.

Þessar töflur eru stórhættulegar

Þessar töflur eru stórhættulegar

 

Skömmu síðar hófst hamagangurinn aftur og var þá gripið til þess ráðs að kalla lögreglu til og biðja um að hann yrði fjarlægður. Við húsleit í herbergi hans fundust tvær töflur með hakakrossmerki og lögðu lögreglumenn hald á þær.

Lögregla ítrekar aðvörunarorð sín vegna þessa umrædda fíkniefnis í formi taflna með hakakrossi. Upp hafa komið mörg mál þar sem aðilar sem hafa neytt töflunar eru gjörsamlega út úr heiminum og stórhættulegir sjálfum sér og öðrum.