Nýjast á Local Suðurnes

Gjaldþrot ráðgjafa hefur engin áhrif á starfsemi Reykjanesbæjar

Gjaldþrot ráðgjafafyrirtækisins Capacent mun ekki með neinum hætti hafa áhrif á starfsemi Reykjanesbæjar, en viðskipti sveitarfélagsins við fyrirtækið hafa verið lítil undanfarin ár, segir í tilkynningu á vef Reykjanesbæjar.

Þá kemur fram að ráðningar í störf hjá sveitarfélaginu séu nú alfarið unnar af starfsmönnum bæjarins og hefur verið um nokkurt skeið.

Fyrirtækið tók að litlum hluta þátt í gerð „Sóknarinnar“ á árinu 2014 fyrir endurskipulagningu fjárhags Reykjanesbæjar.