Nýjast á Local Suðurnes

Gjaldtaka í strætó hefst í janúar – Hér finnurðu lista yfir sölustaði og tímatöflu

Reykjanesbær hefur ákveðið að hefja gjaldtöku í strætó frá 1. janúar 2018. Gjaldtaka fer fram í formi árskorta en einnig verður hægt að kaupa einstaka ferðir um borð í strætó.

Verðskrá árskorta er sem hér segir:

  • Almennt kort 5000 kr.
  • Börn 6-18 ára 2000 kr.
  • Aldraðir og öryrkjar 2000 kr.
  • Einstök ferð 300 kr. (hvorki skiptimynt né skiptimiðar í strætisvögnum)

Sala árskorta 2018 hófst þann 1. desember síðastliðinn og er hægt að kaupa kort á eftirtöldum stöðum:

  • Bókasafni Reykjanesbæjar
  • Sundmiðstöð við Sunnubraut
  • Íþróttamiðstöð Njarðvíkur
  • Rokksafni Íslands í Hljómahöll
  • Upplýsingarmiðstöð ferðamanna í DUUS Safnahúsum

Hér eru tímatöflur og leiðarkerfi