Nýjast á Local Suðurnes

Gildistöku nýs leiðarkerfis innanbæjarstrætó frestað

Undirbúningur er nú í fullum gangi við innleiðingu nýs og endurbætts leiðarkerfis innanbæjarstrætó í Reykjanesbæ, en upphaflega stóð til að taka kerfið í notkun um miðjan júlí.

Kynningarfundur var haldinn í Íþróttaakademíunni í vor þar sem almenningi bauðst að senda inn ábendingar. Reykjanesbær hefur ákveðið að fresta gildistöku leiðarkerfisins á meðan unnið er úr þeim ábendingum sem hafa borist varðandi kerfið.