sudurnes.net
Geta eytt sóttkví í lúxus - Þessi hótel taka þátt! - Local Sudurnes
Nokkrir gististaðir á Suðurnesjum bjóða ferðalöngum sem þurfa að sæta sóttkví frá og með 19. ágúst næstkomandi upp á þá þjónustu sem þarf, en reglurnar eru nokkuð stífar. Þannig þurfa ferðalangar í sóttkví að hafa aðgang að sér baðherbergi, vera útvegað handklæði og annað nauðsynlegt til fimm daga dvalar auk þess sem viðkomandi gististaðir þurfa að aðstoða gesti við að útvega mat og aðrar nauðsynjar. Þeir gististaðir sem bjóða upp á þessa þjónustu á Suðurnesjum eru Hótel Keflavík, en þar geta gestir nýtt sér lúxussvítur hótelsins ef þeir vilja, en fimm stjörnu einingin Diamond suites er á listanum. Þá eru Keflavík Guesthouse, Hótel Duus, Northernlight inn, Sandgerði Cottages og Eco Atlas einnig á lista Ferðamálastofu yfir þá gististaði sem bjóða fólk í sóttkví velkomið. Meira frá SuðurnesjumUm 350.000 manns “líka við” morgunmatinn á Diamond SuitesCourtyard hlýtur eftirsótt verðlaun annað árið í röðBonn­eau gæti spilað í úrslitakeppninni – Flest lið hefðu sent hann heimHver var tilgangslausasta frétt vikunnar að mati Árna Árna?Tilboð Kosmos & Kaos í vef Reykjanesbæjar var 80% yfir kostnaðaráætlunFimm stjörnur og þyrlupallur á 30 ára afmæli Hótel KeflavíkurTvö fyrstu fimm stjörnu hótel landsins á Suðurnesjum – Sjáðu myndirnar!FöstudagsÁrni: Framsóknarflokkurinn er eins og tifandi tímasprengjaHS Orka kynnir drög að [...]