sudurnes.net
Gestrisið Suðurnesjafólk í ferðaþjónustu - Buðu svöngum ferðalöngum í mat - Local Sudurnes
Suðurnesjafólkið Reynir Róbertsson og Ása Fossdal hafa undanfarin ár rekið verslunina og veitingastaðinn Hólabúð á Reykhólum við góðan orðstír. Þau hjón eru höfðingjar heim að sækja og einmitt því fengu nokkrir svangir ferðalangar að kynnast á dögunum. Forsaga málsins er sú að ferðalangarnir höfðu leigt sér þyrlu til ferðalags og einn af viðkomustöðunum var Hólabúð þeirra hjóna. Þegar útlendingarnir lentu á við verslunina var veitingastaðurinn hins vegar lokaður og litla þjónustu að fá – Hjónin brugðu þá á það ráð að bjóða svöngum ferðalöngunum í dýrindis máltíð á heimili sínu. Ferðalangarnir voru ánægðir með matinn og gestrisni þeirra Reynis og Ásu því skömmu síðar fékk Hólabúð frábær meðmæli frá hópnum á ferðavefjum. Meira frá SuðurnesjumSuðurnesjaskutlur skelltu sér á Nelson og djamm í Glasgow – Myndband!Óboðinn gestur gripinn á öryggissvæði LandhelgisgæslunnarFjör á jólaskemmtun Tjarnarsels – Myndband!Það er svona auðvelt að stela af snertilausum kortum – Myndband!Yfirlýsing frá VSFK vegna launahækkana hjá ReykjanesbæSprungur á Vatnsleysuströnd nánast fullar af rusliKvennakór tók lagið úti á svölum í rjómablíðu – Myndband!Lögregla leitar eiganda bílhurðar sem kræktist í flatvagnJóhann Friðrik sækist eftir þriðja sæti hjá Framsókn – Vill tafarlausa tvöföldun ReykjanesbrautarErfðagripum stolið – Biður fólk að hafa samband við lögreglu séu slíkir munir boðnir til sölu