sudurnes.net
Gerðu þínar eigin múslístangir - Hollt, gott og fljótlegt - Local Sudurnes
Uppskriftirnar hér fyrir neðan eru hollar, góðar og einfaldar í matreiðslu. Prófaðu þessar stangir og mundu að þær er best að geyma í kæli eftir að þær eru tilbúnar. Það má svo auðvitað poppa þetta upp og blanda saman við þær þeim fræjum og hnetum sem þér þykja bestar. Múslístangir – bakaðar Það sem þarf að hafa við höndina: 75 g þurrkaðar apríkósur 50 g þurrkaðar fíkjur 50 g döðlur 400 g haframjöl 50 g sólblómafræ 100 g grófhakkaðar hnetur 100 g maltbrauðsmylsna 200 g sykur 225 g síróp 250 g smjör Sólblómafræ, hnetur og maltbrauðsmylsna er brúnuð á pönnu þar til hneturnar eru gullinbrúnar. Bræðið smjör, síróp og sykur saman, við vægan hita á annarri pönnu. Blandið öllum þurrefnum saman við sírópsblönduna og hellið í mót ca. 30×23 cm klætt bökunarpappír. Bakið í ca. 25 mín við 180° C. Kælið og skerið í passlegar stangir. Müslibar Það sem þarf að hafa til taks: 30 g möndlur 30 g heslihnetur 4 msk kókosolía 40 g haframjöl 5 tsk. appelsínumarmelaði Safi úr einni appelsínu Rifinn sítrónubörkur Skraut 70% súkkulaði – Eftir smekk. Ristið möndur og hnetur í kókosolíunni. Bætið haframjöli, marmelaði, sítrónuberki og appelsínusafa saman við og látið krauma þar til appelsínusafinn [...]