Gátu ekki lent í Keflavík vegna slæms skyggnis
Tvær flugvélar frá WOW-air og ein frá Icelandair þurftu að lenda á Egilsstöðum í gær vegna lélegs skyggnis í Keflavík.
Þá hætti að minnsta kosti ein erlend vél við að lenda í Keflavík og lenti í Skotlandi. Vélar WOW og Icelandair biðu um stund á Egilsstöðum og var svo snúið aftur til Keflavíkur þar sem þær gátu lent þegar skyggni var orðið betra.