sudurnes.net
Ganga til samninga við Ellert Skúlason hf. - Local Sudurnes
Vegagerðin hefur ákveðið að ganga til samninga við verktakafyrirtækið Ellert Skúlason hf. varðandi byggingu undirganga undir Grindavíkurveg. Tilboð fyrirtækisins var um 30% yfir kostnaðaráætlun stofnunarinnar. Verkið var boðið út júní og var tilboð Ellerts Skúlasonar hf. það eina sem barst. G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, sagði í svari við fyrirspurn Suðurnes.net. á þeim tíma að metið yrði hvort tilboðið væri of hátt, en það væri gert í öllum tilfellum þegar tilboð væru hátt yfir kostnaðaráætlunum. Tilboð fyrirtækisins hljóðaði upp á um 80 milljónir króna á meðan kostnaður við verkið var áætlaður um 60 milljónir króna af Vegagerðinni. Fyrr í sumar hafnaði Vegagerðin tilboði frá Ellert Skúlasyni og tveimur öðrum fyrirtækjum í tvöföldun Reykjanesbrautar þar sem þau höfðu ekki reynslu í sambærilegum verkefnum. Meira frá SuðurnesjumMeta hvort tilboð Ellerts Skúlasonar sé of háttLoka Hlévangi og byggja á NesvöllumStyrkir streyma til flokkana – Suðurnesjafyrirtæki með veskin á loftiUm 30 starfsmenn á leikskólum nýta námssamning34 veiktust í búðkaupsveislu í Sandgerði – Mengað lambakjöt líklega orsökinSláandi og óásættanlegar niðurstöður við umferðareftirlitKynna Amerískan fótbolta í ReykjanesbæStarfsfólk skrifstofu Vísis nældu sér í 13 rétta í getraunumTekinn á 134 km/h á ReykjnesbrautVilja gera grindvíska togara umhverfisvænni með nýrri tækni