sudurnes.net
Gamlir keppnisbúningar sendir til Afríku - Local Sudurnes
Barna og unglingaráð Knattspyrnudeildar Keflavíkur gefur gamla keppnisbúninga til ABC hjálparstarfs í Búrkína Fasó í Afríku. Ólafía K. Norðfjörð er að fara í 12 daga hjálparstarf til Afríku og leitaði til deildarinnar með þessa hugmynd sem var vel tekið, segir í tilkynningu. Á myndinni er Ólafía með fráfarandi formanni BUR , Smára Helgasyni og viðtakandi formanni Svavari M. Kjartanssyni. Keflavík óskar henni góðrar ferðar og þakkar fyrir góða hugmynd að endurnýta búninga og gleðja afrísk börn í leiðinni, segir einnig í tilkynningunni. Meira frá SuðurnesjumBjóða börnum að æfa íþróttir frítt í einn mánuðValdimar meiddur í baki – Reiknar með að verða orðinn góður fyrir maraþoniðKynning – Gróðurmoldin afgreidd beint af kranaGrauturinn mælist vel fyrir í GrindavíkFélagar í Leikfélagi Keflavíkur halda uppi stemningu í Ævintýragöngu fjölskyldunnarSoho spornar gegn matarsóun – Það sem til fellur fer í gott málefniBjóða upp á ókeypis heilsufarsskoðunSlökkviliðið skellti upp skautasvelliFrítt fótboltanámskeið fyrir börnRagga nagli með fyrirlestur og námskeið í Grindavík