sudurnes.net
Gæi stefnir á ævintýri fyrir framan myndavélina - "Það verður dansað á brúninni" - Local Sudurnes
Einn vinsælasti snappari landsins, Njarðvíkingurinn Garðar Viðarsson, Gæi, stefnir á að setja ansi spennandi þátt í loftið á næstunni. Þátturinn ber nafnið Litla dæmið, sem fylgjendur Gæa á SnapChat ættu að tengja við. Þátturinn fer í loftið á næstu dögum og verður notast við Facebook við dreifinguna. Garðar sagði í stuttu spjalli við Suðurnes.net að það yrði virkilega dansað á brúninni í þættinum og samkvæmt því ættu viðmælendur þessa þekkta snappara eiga von á frekar óþægilegum spurningum. Garðar sagði einnig að hluti þáttarins yrði tekinn upp í studeoi en að einnig yrði farið í heimsóknir með myndavélina að vopni. Garðar vildi að öðru leiti ekki tjá sig um efni þáttarins en hvetur fólk til þess að fylgja Studeo Kast, sem sér um framleiðslu þáttanna á Facebook. Meira frá SuðurnesjumLöggan tekur Surströmming áskorun til styrktar góðu málefniSkeggið fékk að fjúka hjá einum vinsælasta snappara landsins – Sjáðu muninn!Áhrifavaldurinn Gæi tekur þátt í 10 ára áskorun – Myndir!Garðar “Iceredneck”: “Örn Árna eða Hópkaup eru ekkert að koma og redda málunum”FöstudagsÁrni: Hætti frekar að drekka en að fara í meðferðTjá sig ekki um aðgerðir lögreglu í GrindavíkIceredneck bestur í tippinu og boltasparkinu – Myndband!Snappari og rappari keppa í pizzugerð – Þú getur kosið hér!Gæi [...]