Nýjast á Local Suðurnes

Fyrstir til að taka Alipay í notkun hér á landi

Keflavíkurflugvöllur varð í vikunni fyrsti þjónustuaðilinn á Íslandi til að gera viðskiptavinum mögulegt að borga fyrir vöru og þjónustu með Alipay gegnum ePassi. Samstarf Alipay og ePassi hefur náð miklum árangri þar sem bein markaðssetning ePassi í gegnum Alipay app gegnir lykilhlutverki til að ná athygli kínverskra ferðamanna.

Alipay er hluti af Alibaba samsteypunni, sem er stærsta netverslun heims, og ein vinsælasta farsímagreiðslulausn í heimi með yfir 870 milljón virka notendur. Alipay sér um yfir 70% af kínverskum greiðslum í gegnum farsíma. ePassi er stærsta farsímagreiðsluþjónustu fyrirtækið á Norðurlöndum sem annast t.d. greiðsluþjónustuna og markaðssetningu fyrir Alipay.

Fyrsta greiðslan var innt af hendi með Alipay í verslun 66° Norður á Keflavíkurflugvelli í gær. Fleiri fyrirtæki í flugstöðinni bjóða nú einnig ferðalöngum að borga fyrir vöru og þjónustu með Alipay – þau eru: Bláa Lónið, Penninn Eymundsson og Optical Studio og fleiri fyrirtæki eru í viðræðum til að bjóða upp á þessa lausn.

„Í fyrra fóru nærri 86.000 kínverskir borgarar um Flugstöð Leifs Eiríkssonar og það sem af er þessu ári eru ferðalangar þaðan orðnir 55.300 samkvæmt upplýsingum frá Ferðamálastofu,“ segir Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir, deildarstjóri á viðskiptasviði Keflavíkurflugvallar. „Fram hefur komið í fjölmiðlum að útgefnar tölur frá kínverskum stjórnvöldum bendi til þess að áætlað sé að um 300 þúsund kínverskir ferðamenn sæki Ísland heim árið 2020 og þessi nýja þjónusta auðveldar þessum hópi ferðamanna að versla vörur og þjónustu á Keflavíkurflugvelli.“

„Það er okkur mikið ánægjuefni að Alipay þjónustu ePassi hafi verið hleypt af stokkunum,“ segir Danielle Neben, markaðsstjóri ePassi á Íslandi. „Við óskum 66° Norður, Bláa Lónið, Optical Studio, Penninn Eymundsson og Isavia velfarnaðar í viðskiptum við þennan nýja hóp viðskiptavina.“