Nýjast á Local Suðurnes

Fyrsti útisigur Jürgen Klopp í Evrópukeppni var gegn Keflavík

Jürgen Klopp fagnar sigri gegn Keflavík á Laugardalsvelli árið 2005

Nýráðinn framkvæmdarstjóri enska knattspyrnuliðsins Liverpool, lék með og þjálfaði lið Mainz 05 í 17 ár áður en hann tók við þjálfun Borussia Dortmund árið 2008. Klopp lék nánast allar stöður á vellinum nema stöðu markvarðar og þótti hafa yfirburðar leikskilning, en hann lék alls 325 leiki fyrir liðið sem sóknar-, miðju- og varnarmaður.

Árið 2005 komst Mainz 05 í fyrsta sinn í Evrópukeppni undir stjórn Klopp og eftir að hafa komist upp úr forkeppninni lá leiðin til Íslands þar sem liðið lék gegn Keflvíkingum á Laugardalsvelli í UEFA bikarnum, í leik þar  sem Klopp stýrði Mainz 05 til 2-0 sigurs og þjálfarinn sigursæli vann þar með sinn fyrsta útisigur í Evrópukeppni.

Síðan 2008 hefur Klopp meðal annars tvisvar sinnum orðið þýskur meistari með Dortmund, komist í úrslitaleik Meistaradeildarinnar og unnið fimm silfurverðlaun í deildar- og bikarkeppnum í Þýskalandi.

Frá leik Keflavíkur og Mainz 05 - Mynd: Kd. Keflavíkur

Frá leik Keflavíkur og Mainz 05 – Mynd: Kd. Keflavíkur