Fyrsta skóflustunga tekin að Stapaskóla – Fyrsti áfangi skólans tekinn í notkun árið 2019
Áætlað er að fyrsti áfangi nýs skóla í Dalshverfi verði tekinn í notkun haustið 2019, en fyrsta skóflustungan var tekin í dag af Tinnu Rut Sigvaldadóttur, leikskólanemanda á Holti og Heru Björgu Árnadóttur nemanda í Akurskóla Dalsbraut. Skólinn mun heita Stapaskóli, en það varð niðurstaða bæjarráðs og fræðsluráðs eftir tillögum sem bárust í nafnasamkeppni sem fræðsluráð efndi til.
Skólinn mun heita Stapaskóli en nafnið var ein af þeim 50 tilögum sem bárust frá 186 einstaklingum sem tóku þátt í nafnasamkeppni fræðsluráðs í október. Alls 28 einstaklingar sendu inn tillögu að nafninu Stapaskóli og flestir rökstuddu nafngiftina með því að skólinn væri í nálægð eða á Stapa/Vogastapa, auk þess sem nafnið væri stutt og þjált. Enginn annar skóli á Íslandi ber þetta nafn.
Áætlað er að fyrsti áfangi skólans verði tekinn í notkun haustið 2019. Á svæðinu er nú starfræktur skóli í bráðabirgðahúsnæði sem útibú frá Akurskóla.
Sú mikla uppbygging sem nú er í skólum í Reykjanesbæ tengist þeirri miklu íbúafjölgun sem verið hefur að undanförnu. Íbúum hefur verið að fjölga allt upp í 8% milli ára sem kallar á mikla innviðauppbyggingu. Auk nýs skóla í Innri Njarðvík er unnið að stækkun Háaleitisskóla á Ásbrú og næsta sumar verður leiksskólinn Háaleiti einnig fluttur í nýtt og stærra húsnæði til að mæta vaxandi þörf á Ásbrú.
Síðasti skóli sem vígður var í Reykjanesbæ var Akurskóli undir lok árs 2005. Háaleitisskóli byggðist svo upp eftir brotthvarf hersins árið 2006 í skólahúsnæði á gamla varnarsvæðinu og var fyrst um sinn rekinn sem útibú frá Njarðvíkurskóla. Sá leikskóli sem vígður var síðast var Vesturberg, á haustmánuðum 2008.
Hér má skoða teikningar af Stapaskóla.