sudurnes.net
Fyrrverandi sparisjóðsstjóri ákærður fyr­ir umboðssvik - Local Sudurnes
Fyrrverandi sparisjóðsstjóri í Keflavík hefur verið ákærður af Héraðssaksóknara fyrir að misnota aðstöðu sína sem sparisjóðsstjóri með lánveitingum til einkahlutafélaga. Samkvæmt fréttastofu Ríkisútvarpsins nema fjárhæðirnar í ákærunni hundruðum milljóna króna. Samkvæmt heimildum fréttastofu RÚV nema lánveitingarnar hundruðum milljóna króna. Ákært er fyrir tvö tilvik, hvort tveggja lánveitingar til einkahlutafélaga. Verjandi sparisjóðsstjórans fyrrverandi segir í samtali við fréttastofu RÚV að hann lýsi sig saklausan af ákærunni. Þá segist hann hafa aðstoðað lögreglu við rannsókn málsins, eins og honum hafi verið unnt, og upplýst allt sem hann hafi getað upplýst. Það séu honum veruleg vonbrigði hve langan tíma rannsóknin tók. Meira frá SuðurnesjumFjölmörg félög heiðrað minningu Ölla með framlögumÁrekstrar og föst ökutæki víðsvegar á SuðurnesjumTorkennilegur hlutur reyndist vera flugskeytabúnaðurDráttur á milljarðaframkvæmdum Bandaríkjahers á KeflavíkurflugvelliFjárfestingasjóður vill IsaviaTillaga um flutning gæslunnar á Suðurnes flutt í fimmta sinnOfsaveður eða fárviðri – Þetta þarftu að hafa í huga!Metfjöldi fíkniefnamála í Leifsstöð – Þrettán í gæsluvarðhaldiÞyrluslys í miðri afplánun – FöstudagsÁrni hefur skoðun á því!Funda fyrir hádegi um stöðuna við Þorbjörn