Fyrrum leikmaður Liverpool til Keflavíkur
Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur gengið frá samningi við Marley Blair. Blair, sem er 21. árs gamall enskur leikmaður, getur spilað flestar stöður framarlega á vellinum.
Blair lék með unglingaliðum Liverpool og Burnley á sínum tíma, en lék ekki með aðalliðum félaganna. Hann hefur verið án félags síðan samningur hans við Burnley rann út í júlí á síðasta ári, segir í tilkynningu.
Keflavík leikur í efstu deild á komandi tímabili en liðið var í efsta sæti 1. deildarinnar þegar síðasta tímabil var blásið af.