Fyrrum leikmaður Liverpool til Keflavíkur - Local Sudurnes
Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur gengið frá samningi við Marley Blair. Blair, sem er 21. árs gamall enskur leikmaður, getur spilað flestar stöður framarlega á vellinum. Blair lék með unglingaliðum Liverpool og Burnley á sínum tíma, en lék ekki með aðalliðum félaganna. Hann hefur verið án félags síðan samningur hans við Burnley rann út í júlí á síðasta ári, segir í tilkynningu. Keflavík leikur í efstu deild á komandi tímabili en liðið var í efsta sæti 1. deildarinnar þegar síðasta tímabil var blásið af. Meira frá SuðurnesjumÞjálfarinn rekinn frá NjarðvíkLiverpool minnist fyrrum þjálfara KeflavíkurLiverpool Open 2016 á Húsatóftarvelli á laugardagArnór Ingvi á meðal launahæstu íþróttamanna landsinsRise til Keflavíkur – Ætlað að styrkja liðið í baráttunni framundanSíðasti leikur Scott Ramsay með Grindavík á morgunNjarðvíkingar ætla að næla í stóran leikmann í jólafríinu – Varnarleikurinn í molumSuðurnesjaliðin í basli í Dominosdeildinni – Vandræði Njarðvíkinga hófust á grillinuAndri Rúnar enn á skotskónum – Grindavík lagði ÍBVKeflvíkingar kaupa öflugan U21 landsliðsmann