sudurnes.net
Funduðu með ráðherranefnd - Local Sudurnes
Bæjarstjórar sveitarfélaganna fjögurra ásamt framkvæmdastjóra Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum funduðu með ráðherranefnd um ríkisfjármál í Ráðherrabústaðnum í dag. Fundarefnið var staða atvinnumála á Suðurnesjum. Spár gera ráð fyrir að atvinnuleysi á Suðurnesjum verði 17,6% í september en landsmeðaltal er 8,1%. Fundarmenn ræddu stöðuna í sveitarfélögunum og þær áskoranir sem þau standa frammi fyrir á komandi vetri. Lagðar voru fram tillögur að verkefnum á Suðurnesjum sem hægt væri að fara í skömmum fyrirvara og leiðum til úrbóta fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem sóttvarnaraðgerðir vegna Covid 19 bitna hvað harðast á. Meira frá SuðurnesjumLausnamiðuð leikskólabörn beina sjónum sínum að plastnotkunNæst flest hegningarlagabrot á SuðurnesjumHagnast um 1,5 milljarð – Auka umsvifin í ReykjanesbæHeilsu- og forvarnarvika í október – Hvetja fyrirtæki og stofnanir til að taka þáttBjóða upp á fuglaskoðunargönguKeflavíkursigur í grannaslagStal kortaupplýsingum og ferðaðist vítt og breitt um heiminnFullbókað í samþætt atvinnuflugmannsnám hjá KeiliKrefjast útboðs á tvöföldun Reykjanesbrautar fyrir áramótHælisleitandi í gæsluvarðhald – Handtekinn með mikið magn af reiðufé