sudurnes.net
Fundu heimatilbúna sprengju í Reykjanesbæ - Local Sudurnes
Lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning frá gangandi vegfaranda í Reykjanesbæ um undarlegan hlut sem á vegi hans varð. Við nánari athugun reyndist hluturinn vera heimatilbúin sprengja. Í Facebook-færslu lögreglunnar kemur fram að sprengjan hafi verið samsett úr flugeldum og bendir lögregla foreldrum á að brýna fyrir börnum sínum að afar hættulegt geti verið að eiga við flugelda líkt og gert var í þessu tilviki. Þá segir lögregla að gamlir flugeldar sem ekki eru geymdir við réttar aðstæður geti verið varasamir. Meira frá SuðurnesjumMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkÓgnandi farþegi til vandræða í flugvél og leigubifreiðEkið á bifreið sem þveraði vegSóttu slasaðan einstakling við gosstöðvarnarLögregla ræddi við ungan innbrotsþjófGreiddi fyrir vörur í verslun með leikfangaseðliÓk í veg fyrir dópaðan bílþjófStöðvaður með töluvert af oxycont­in­töfl­um17 ára ökumaður ók hraðast allra – Sviptur og fær 130.000 króna sektÁ annan tug ökumanna teknir úr umferð – Fór beint úr sýnatöku í að kasta grjóti