sudurnes.net
Fundu fíkniefni og vopn við húsleit - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum fann um helgina umtalsvert magn af fíkniefnum og lyfseðilsskyldum lyfjum við húsleit. Í tilkynningu frá lögreglu segir að um sé að ræða hvítt fíkniefni, meintar e-töflur, metamfetamín og sterk verkjalyf. Einnig fannst kindabyssa í íbúðarhúsnæðinu og skotfæri auk fjármuna sem grunur leikur á að séu ágóði af fíkniefnasölu. Húsráðandi játaði fyrir lögreglumönnum á vettvangi að stunda fíkniefnasölu en neitaði að tjá sig um flest atriði sakarefnisins við skýrslutöku á lögreglustöð, segir í tilkynningunni. Meira frá SuðurnesjumGæi stefnir á ævintýri fyrir framan myndavélina – “Það verður dansað á brúninni”Vatnsgæði eins og best verður á kosiðLagðist á Reykjanesbraut og var færður burt í járnum – Myndband!Thorsil fær frest á greiðslu gatnagerðargjalda vegna tafa á deiliskipulagiErlendir farandverkamenn herja á íbúa SuðurnesjaReykjanesbær kemur vel út í nýrri þjónustukönnunLíflegar umræður um KFC í Reykjanesbæ á einum vinsælasta afþreyingavef heimsLeifur metinn hæfastur umsækjendaEysteinn samdi fallegan texta við lag Einars Arnar rétt fyrir andlátið – Myndband!Bláa lónið stefnir að byggingu 28 íbúða fjölbýlishúss fyrir starfsfólk