sudurnes.net
Fundu fíkniefni á víð og dreif um íbúðarhúsnæði - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum haldlagði umtalsvert magn af fíkniefnum í húsleit sem gerð var, að fenginni heimild, í íbúðarhúsnæði í umdæminu nýverið. Var þar einkum um að ræða amfetamín sem lögreglumenn fundu víða í húsnæðinu. Þrír karlmenn voru handteknir og færðir á lögreglustöð. Einn þeirra játaði að eiga hluta efnanna sem fundust og jafnfram að hafa selt fíkniefni. Við öryggisleit á honum fannst svo efni sem hann sagði vera amfetamín. Þá framvísaði gestur sem var í húsnæðinu, þegar lögreglu bar að garði, amfetamíni og kannabisefnum. Í öðru óskyldu máli fundu lögreglumenn við húsleit glerkrukku með kannabisefnum í þvottahúsi. Játaði einn þriggja manna sem búa í íbúðinni eign sína á efninu. Meira frá SuðurnesjumAllir komnir með nýjar tunnur og flokkun hefst af fullri alvöruEndaði á toppnum eftir glæfraakstur á ReykjanesbrautFullur á færibandi þáði gistingu í fangaklefaÁrleg vorhreinsun hefst í dagLögregla ræddi við ungan innbrotsþjófGrunsamlegar mannaferðir tilkynntar til lögregluLögregla lagði hald á kannabisefni og e-töflur í húsleitRýmingaráætlun klár fyrir GrindavíkBryndís býður fram krafta sína í prófkjöri – Stefnir á 4. sætiðMikill munur á útgjöldum vegna félagsþjónustu – Sandgerði langt yfir landsmeðaltali