Nýjast á Local Suðurnes

Fundað fyrir luktum dyrum í Grindavík – Ræða starfslokasamning bæjarstjóra

Bæjarstjórn Grindavíkur heldur fund fyrir luktum dyrum, þar sem rætt verður um starfslok bæjarstjóra sveirarfélagsins, Róberts Ragnarssonar, á þriðjudaginn klukkan 19. Um er að ræða aukafund þar sem tvö mál eru á dagskrá, umrædd starfslok auk mála er varða útboð vegna uppbyggingar Miðgarðs.

Starfslok bæjarstjórans hafa legið í loftinu undanfarnar vikur eins og Suðurnes.net hefur greint frá og er búist við að gengið verði frá starfslokasamningi við hann í kjölfar fundarins. Talið er að starfslokin kosti bæjarsjóð um 15 milljónir króna, en í ráðningarsamningi er gert ráð fyrir uppsagnarfresti auk bilðlauna.